22.02.2012 08:00 - 59 lestrar
Öskudagur 2012
Við viljum þakka öllum krökkum sem komu til okkar í dag og sungu fyrir okkur og fengu nammi í verðlaun. Ljósmynd var tekin af öllum sem komu og er hægt að skoða þær myndir á myndasíðunni okkar.
03.01.2012 00:00 - 47 lestrar
Nýr starfsmaður
Við bjóðum Þorstein Þorvaldsson velkominn til starfa, en hann hóf störf hjá okkur í október.
02.01.2012 08:00 - 51 lestrar
Raðhús við Goðabraut
Höfum samið við Tréverk ehf um að sjá um raflagnir í 3 íbúða raðhús sem þeir eru að byggja við Goðabraut á Dalvík.
29.05.2011 08:00 - 71 lestrar
Víkurröst
Höfum samið við Dalvíkurbyggð um að sjá um endurnýjun á öllu rafmagni í Víkurröst sem tengjast endurbótum og breytingum sem fram fara á húsinu í sumar og haust.
28.05.2011 08:00 - 68 lestrar
2 nýir starfsmenn
2 starfsmenn hafa verið ráðnir í sumar og hafa þeir báðir unnið hjá okkur áður. Þetta eru Haraldur Örn Haraldsson og Brynjar Árnason og eru þeir boðnir velkomnir til starfa.
Skoða allar fréttir